Gáfulegar þingumræður....

"Hættustig 4" er textinn sem kemur upp í huga mínum  þegar ég heyri hvað sagt er á þingi þessa dagana, en þar er rætt um erfðarbreytt bygg og  þingflokksherbergi framsóknar og eitthvað álíka gáfulegt.  Ég segi "ríkisstjórn vaknið og hlustið á fólkið, heimilin og fyrirtækin, þau brenna á skuldabáli!"   Við erum að reyna að ná sambandi við ríkisstjórnina en það er eitthvað sambandsleysi á línunni eða er enginn til að svara á hinum endanum?  Hvenær kemur að hættustigi fimm eða uppreisn í landinu?   Ég ætla að vona að þetta gangi ekki svo langt en ríkisstjórnin verður að taka sig saman í andlitinu og fara að hlusta! Ég veit að þetta er erfitt fyrir ríkissjóð en það þarf hörku og kjark ef ekki á illa að fara fyrir okkar litlu þjóð og aðgerðir strax!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband